Lög Tvíundar
I kafli: Félagið
1. GR.
Félagið heitir Tvíund, félag stúdenta í Tölvunarfræðideild við Háskólann í Reykjavík. Á ensku skal félagið nefnast Tviund, Reykjavík University School of Computer Science Students Organization. Aðsetur þess er í Háskólanum í Reykjavík og varnarþing er í Reykjavík.
2. GR.
Tilgangur félagsins er:
- Að gæta hagsmuna og velferðar tölvunarfræðistúdenta við Háskólann í Reykjavík.
- Að stuðla að mótun Tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
- Að stuðla að öflugu félagslífi innan Tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
3. GR.
Tilgangi sínum skal félagið ná með því:
- Að skapa tengsl við félög tölvunarfræðinga og tölvunarfræðistúdenta hér á landi sem og erlendis.
- Að stofna til umræðu um málefni tengd tölvunarfræði.
- Að skapa tengsl við fyrirtæki og stofnanir sem starfa á vettvangi sem tengist námi tölvunarfræðinema.
- Að standa að reglulegum viðburðum á vegum félagsins.
- Að vera tengiliður félagsmanna við Tölvunarfræðideild.
4. GR.
Starfstími Tvíundar og reikningsár skal vera á milli aðalfunda.
5. GR.
1.mgr. Allir þeir er stunda nám við tölvunarfræðisvið Háskólans í Reykjavík njóta aðildar að félaginu. Þeir félagsmenn sem kjósa að greiða félagsgjald Tvíundar, njóta aukinna fríðinda umfram aðra félagsmenn.
- 1.mgr. Stjórn félagsins skal ákveða upphæð félagsgjalda hverju sinni fyrir hvert skólaár. Félagsgjald er greitt einu sinni á ári, venju samkvæmt í byrjun haustannar, fyrir viðkomandi skólaár.
- 2.mgr. Öllum nemendum við Háskólann í Reykjavík er frjálst að sækja um að gerast greiðandi félagsmeðlimur Tvíundar.
II kafli: Stjórn félagsins
6. GR.
Stjórn skal skipuð sjö félagsmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, hagsmunafulltrúa, skemmtanastjóra og tveimur skemmtanafulltrúum.
7. GR.
Stjórn Tvíundar stýrir málefnum félagsins eftir þeim ákvæðum sem lög þessi segja til um. Stjórn tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárráðum og skuldbindingum gagnvart öðrum aðilum.
8. GR.
- 1.mgr. Formaður kemur fram fyrir hönd félagsins innan sem utan Háskólans í Reykjavík. Formaður er tengiliður Tvíundar við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Formaður stjórnar fundum stjórnar og situr í fulltrúaráði SFHR. Formaður hefur prófkúru á reikningum félagsins.
- 1.mgr. Í fjarveru formanns gegnir varaformaður hlutverki formanns. Í fjarveru formanns og varaformanns skal stjórn velja stjórnarmeðlim til þess að gegna hlutverki formanns.
9. GR.
Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með viðburðum á vegum Tvíundar. Hann hefur einnig yfirumsjón með skemmtinefnd Tvíundar og er formaður hennar. Skemmtanastjóri er sömuleiðis tengiliður félagsins við skemmtanastjóra annarra nemendafélaga innan Háskólans í Reykjavík.
10. GR.
Varaformaður ritar fundargerðir stjórnarfunda. Varaformaður hefur umsjón með heimasíðu félagsins og hefur umsjá með aðsendum skilaboðum. Varaformaður skal vera tengiliður Tvíundar við önnur félög tölvunarfræðistúdenta, innlend sem erlend. Varaformaður sér til þess að öll gögn sem snúa að störfum stjórnarinnar séu aðgengileg öllum stjórnarmeðlimum og sér til þess að næsta stjórn fái aðgang að áðurnefndum gögnum. Varaformaður hefur yfirumsjón með Tvíund Production. Varaformaður er jafnframt upplýsingafulltrúi félagsins.
11. GR.
Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins og hefur prókúru á reikninga félagsins. Gjaldkeri undirbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir september lok ár hvert. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina áramótauppgjör eigi síðar en fyrir upphaf vorannar ár hvert.
12. GR.
Hlutverk hagsmunafulltrúa er að útvega og halda utan um þau námskeið og fyrirlestra sem haldnir eru á vegum félagsins. Hagsmunafulltrúi skal hafa yfirumsjón með upprifjunarnámskeiðum fyrir lokapróf á hverri önn. Auk þess skal hann vera tengiliður Tvíundar við tölvunarfræðideildina fyrir þau námskeið sem tölvunarfræðideildin stendur fyrir. Hann hefur yfirumsjón með og er tengiliður við hverja þá klúbba sem eru á vegum félagsins.
13. GR.
- 1.mgr. Stjórn skal halda fundi eigi sjaldnar en tvisvar sinnum í mánuði. Formaður boðar til stjórnarfundar með að lágmarki viku fyrirvara. Stjórnarmeðlimir geta óskað þess að boðað verði til stjórnarfundar.
- 2.mgr. Nemendafulltrúi og nýnemafulltrúi heyra undir hagsmunafulltrúa. Hafa þeir áheyrnar- og seturétt á fundum stjórnar Tvíundar.
14. GR.
Skemmtanafulltrúar heyra undir skemmtanastjóra. Þeir sinna störfum skemmtinefndar eftir þörfum. Einnig sitja þeir í nefnd Tvíund Production.
15. GR.
Fundur telst lögmætur þegar hreinn meirihluti stjórnar mætir á fundinn. Ákvörðun telst lögleg ef hreinn meirihluti stjórnar samþykkir hana.
III kafli: Félagsmenn
16. GR.
Stjórn félagsins, með undirskriftum 50 félagsmanna, er heimilt að víkja félagsmanni úr félaginu vegna ámælisverðrar háttsemi. Skila þarf skriflegri beiðni til stjórnar þar sem ámælisverð háttsemi er rökstudd á ítarlegan hátt. Með ámælisverðri háttsemi er átt við hegðun félagsmanns sem verður félaginu til skammar á viðburðum félagsins, eða annars konar hegðun sem þykir ósæmandi. Hafi undirskriftum ekki verið náð er stjórn þó heimilt að víkja félagsmanni úr félaginu sé rökstuddur grunur um lögbrot af hans hálfu.
17. GR.
Stjórn félagsins er heimilt að útiloka félagsmeðlim frá allt að þremur viðburðum tímabundið vegna ámælisverðrar háttsemi meti hún tilefni til, sbr. 16. gr. laganna. Stjórninni er heimilt að gera slíkt hið sama ef félagsmenn mæta á viðburði félagsins þar sem skráningar er krafist án þess að hafa gert slíkt. Sama á við um félagsmenn sem skrá sig á viðburði félagsins en mæta eigi.
18. GR.
Stjórn félagsins er heimilt að útnefna heiðursfélaga Tvíundar meti hún tilefni til.
19. GR.
Stjórn félagsins er heimilt að útnefna sérlega hjálp- og áhugasama félagsmenn sem Verndara Tvíundar á hverju starfsári. Stjórn getur haft samband við Verndara til að fá upplýsingar eða hjálp við einstaka viðburði eða verkefni. Hver stjórn skal halda Verndarafögnuð einu sinni á ári.
20. GR.
Stjórn félagsins getur boðað til almenns félagsfundar til að ræða málefni Tvíundar við félagsmenn. Formaður Tvíundar opnar fundinn og tilnefnir fundarstjóra sem stýrir umræðum. Stjórn er skylt að boða til almenns félagsfundar ef fimmtungur félagsmanna óskar þess með skriflegri beiðni til stjórnar félagsins. Félagsfundir skulu auglýstir tryggilega með tveggja daga fyrirvara hið minnsta.
21. GR.
- 1.mgr. Komi fram á félagsfundi tillaga um vantraust á stjórn Tvíundar skal fundarstjóri víkja sæti, sé hann stjórnarmaður, og fundurinn kjósa nýjan fundarstjóra. Fundarstjóri ásamt einum fulltrúa tillöguflytjenda skal láta fara fram atkvæðagreiðslu um tillöguna. Hljóti tillagan í þeirri atkvæðagreiðslu fylgi 2/3 atkvæðabærra fundarmanna, skal efna til atkvæðagreiðslu meðal allra félagsmanna undir stjórn fundarstjóra og ræður í henni einfaldur meirihluti atkvæða.
- 2.mgr. Hljóti vantrauststillagan brautargengi, skal fundastjóri sjá um nýja stjórnarkosningu, sem fara skal fram líkt og vorkosningar eftir því sem það á við. Fundarstjóra skal heimilt að kveða félagsmenn með sér til starfa. Þessari kosningu skal vera lokið innan viku frá samþykkt vantrausttillögunnar. Meirihluti atkvæði ræður kosningu. Framboð til stjórnar skal berast fundarstjóra fyrir upphaf fundar.
IV. kafli: Aðalfundur og kosningar
22. GR.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda eigi síður en 10 virkum dögum eftir að ný stjórn hefur verið kjörin. Til fundarins skal boða með auglýsingu á tryggilegan hátt, með viku fyrirvara hið minnsta, og er hann þá lögmætur. Tillaga hlýtur samþykki ef a.m.k. helmingur fundarmanna greiðir henni atkvæði.
23. GR.
Mál þessi skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:
- Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum.
- Stjórn félagsins leggur fram ársreikninga félagsins.
- Lagabreytingar
- Ný stjórn tekur við.
- Önnur mál.
24. GR.
- 1.mgr. Stjórn Tvíundar kýs inn eftir viðtöl embætti nýnemafulltrúa og nemendafulltrúa á haustönn eigi síður en septemberlok, samhliða því skal auglýsa eftir umsóknum í aðrar nefndir tvíundar.
- 1.mgr. Kjörgengi til framboðs nýnemafulltrúa hafa einungis félagsmenn sem eru nýnemar.
- 2.mgr. Kjörgengi til framboðs nemendafulltrúa hafa allir félagsmenn, að undanskildum nýnemum.
- 3.mgr. Kjörgengi til framboðs fjarnemafulltrúa hafa einungis félagsmenn sem eru fjarnemar.
- 4.mgr. Ef ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn auglýsa eftir framboðum í laus embætti og boða til aukakosninga, eigi síðar en 10 dögum eftir aðalfund. Skal þá framkvæmd kosninganna vera í samstarfi við SFHR.
25. GR.
- 1.mgr. Ef ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn auglýsa eftir framboðum í laus embætti og boða til aukakosninga, eigi síðar en 10 dögum eftir aðalfund. Skal þá framkvæmd kosninganna fara eftir 1. mgr. 25. gr. laganna.
- 2.mgr. Hafi, eftir þessa síðari umferð kosninga, ekki hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn skipa í laus embætti úr hópi félagsmanna sem hafa kjörgengi.
- 3.mgr. Hljótist ekki kosning í allar stöður í skemmtinefnd, nýnemafulltrúa, nemendafulltrúa og fjarnemafulltrúa er stjórn heimilt að skipa í lausar stöður.
26. GR.
Ef einhver stjórnarmeðlimur þarf að segja af sér eða er vikið úr stjórn skal stjórn Tvíundar boða til kosninga eða viðtöl í viðkomandi embætti eigi síður en tveimur vikum síðar.
V. kafli: Nefndir
27. GR.
Hagsmunanefnd Tvíundar saman stendur af hagsmunafulltrúa, nemendafulltrúa og nýnemafulltrúa. Hlutverk nefndarinnar er hagsmunagæsla nemenda við Tölvunarfræðideild. Hagsmunanefnd ber að upplýsa stjórn Tvíundar um málefni nefndarinnar á stjórnarfundum.
28.GR.
Skemmtinefnd hefur yfirumsjón með viðburðum á vegum Tvíundar. Skemmtinefnd skal skipuð þremur aðilum; skemmtanastjóra og tveimur skemmtanafulltrúum.
- 1.mgr. Skemmtanafulltrúar skiptast í markaðsfulltrúa og viðburðafulltrúa.
- 2.mgr. Markaðsfulltrúinn sér til þess að Tvíund Production búi til auglýsingar fyrir viðburði og að þeim sé dreift á alla samfélagsmiðla Tvíundar.
- 3.mgr. Viðburðarfulltrúinn sér um að opna fyrir skráningu viðburða og að manna fólk til þess að taka mætingu á viðeigandi viðburðum.
29.GR.
- 1.mgr. HR-ings nefnd samanstendur af Tvíund, sjálfboðaliðum og öðrum er hafa áhuga á að gera HR-inginn að veruleika. Skal að minnsta kosti einn stjórnarmeðlimur úr Tvíund eiga sæti í nefndinni.
- 2.mgr. Nefndin samanstendur af a.m.k. fimm aðilum. Stjórn skal úthluta verkefnum sín á milli og sjá til þess að þau séu öll uppfyllt. Nefndarmeðlimur getur að hámarki verið ábyrgur fyrir tveim hlutverkum en getur óskað eftir aðstoð utan nefndar en á sína ábyrgð.
- 3.mgr. Hagsmunir nefndarinnar eru í höndum stjórnar Tvíundar varðandi ákvarðanir tengdar fjármagni. Tvíund skal leggja 10% af ágóða HR-ingsins í sjóð sem er ætlað að betrumbæta HR-inginn milli ára. Sjóður þessi er einungis ætlaður til kaupa á búnaði fyrir HR-inginn.
- 4.mgr. Nefndinni er heimilt að sækja um fjárstyrki frá Tvíund
- 5.mgr. Samþykki stjórnar Tvíundar þarf fyrir því fjármagni úr sjóðnum, hvort sem það er vegna tækjakaupa eða fjárstyrkja.
- 6.mgr. Nefndin telst ályktunarbær ef meirihluti nefndarmeðlima situr fund. Ákvörðun nefndar telst gild ef hreinn meirihluti samþykkir hana.
30.GR.
Nýnemafulltrúi er tengiliður félagsmanna sem eru nýnemar við stjórn félagsins.
31.GR.
Nemendafulltrúi er trúnaðarmaður allra félagsmanna og er tengiliður þeirra við stjórn félagsins.
32.GR.
Fulltrúi erlendra nema er með áheyrnarrétt á fundum og er tengiliður stjórnar við erlenda nema og skiptinema við Háskólann í Reykjavík. Fulltrúinn er kosinn inn af stjórn Tvíundar eftir viðtöl. Ávallt skal leitast eftir því að staða fulltrúa erlendra nema sé mönnuð á bæði haust- og vorönn.
33.GR.
- 1.mgr. Tvíund Production skal skipuð þremur aðilum skemmtanastjóra og skemmtanafulltrúum. Skemmtanastjóri skal vera í forsvari fyrir Tvíund Production. Tvíund Production skal sjá um að framleiða, eða sjá til þess að framleitt sé, allt það margmiðlunarefni sem Tvíund þarfnast t.a.m. veggspjöld, kynningarefni, ljósmyndir og myndbönd. Tvíund Production er heimilt að skipa félagsmenn í ákveðin verkefni á sínum vegum.
- 1.mgr. Stjórn félagsins skipar í nefndina en félagsmönnum skal gefinn kostur á því að sækja skriflega um stöðu í nefndina til stjórnar í byrjun haustannar.
34.GR.
- 1.mgr. Félagsmönnum er frjálst að stofna klúbba innan Tvíundar með samþykki stjórnar. Klúbburinn skal skipa ábyrgðarmann klúbbsins.
- 1.mgr. Klúbbar heyra undir lög Tvíundar og siðareglur skólans. Stjórn Tvíundar áskilur sér rétt til þess að leysa upp starfsemi klúbbsins.
- 2.mgr. Allir núverandi nemendur sem tilheyra undir tölvunarfræðideild í Háskólanum í Reykjavík er heimilt að sækja viðburði klúbba sem heyra undir Tvíund.
- 3.mgr. Klúbbar geta sótt um styrki hjá Tvíund. Umsókn verður skoðuð á næsta stjórnarfundi.
35.GR.
Formaður Tvíundar og forseti /sys/tra skulu hittast á fundi að minnsta kosti mánaðarlega. Aðrir stjórnarmeðlimir mega vera viðstaddir. Komist formaður ekki á þessa fundi stendur varaformaður í hans stað. Fundir skulu vera ritaðir.
VII. kafli: Lagabreytingar
36.GR.
- 1.mgr. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða sérstökum fundi sem skal boðaður með viku fyrirvara, hið minnsta. Þurfa 2/3 hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni.
- 2.mgr. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar eigi síðar en 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund eða lagabreytingafund. Tillögur til lagabreytinga skulu auglýstar á tryggilegan hátt. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða öðrum lagabreytingarfundi.
- 3.mgr. Stjórn er skylt að boða til lagabreytingarfundar ef tíund félagsmanna óskar þess. Stjórn er heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt á að leggja til lagabreytingar.
37.GR.
Lög þessi skulu ætíð birt á heimasíðu Tvíundar. Einnig skal geyma eintak af lögum þessum á skrifstofu félagsins.
38.GR.
Lög þessi öðlast þegar gildi.