Category Archives: Tilkynningar

Aðalfundur 4.apríl 2013

Aðalfundur Tvíundar verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl 2013 og fer fram í stofu  M103 kl 18:00.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum.
  2. Stjórn félagsins leggur fram ársreikninga félagsins.
  3. Tilkynnt skal um úrslit kosninga.
  4. Lagabreytingar.
  5. Ný stjórn tekur við.
  6. Önnur mál.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.
Boðið verður upp á léttan kvöldverð fyrir fundarmenn.
Lagabreytingatillögur skulu berast til tviund@tviund.com með titlinum “Lagabreyting 2013″.
Við hvetjum alla félagsmenn til þess að mæta.Bestu kveðjur,
f.h. stjórnar Tvíundar
Alma Ósk Melsteð, Upplýsingafulltrúi.

Nýnemaóvissuhópeflispartýskrall, Tvíundarbjór á Zimsen og partý á Austur!

Jæja jæja – á föstudagskvöldið hefst loksins veturinn almennilega.

Nýnemarnir ætla að byrja á því að hittast kl. 16:45  (staðsetning auglýst síðar) í smá hópefli/skrall.

Að því loknu heldur hópurinn yfir á Zimsen þar sem að eldri nemendur slást í hópinn og við fáum okkur bjór saman og hitum upp fyrir SFHR partýið sem haldið verður á Austur frameftir kvöldi.

Það er ekki nauðsynlegt að vera búinn að greiða í Tvíund fyrir þessa atburði – þannig að það er um að gera að mæta og kynnast fólki.

ATH. – Þeir sem skrá sig í nýnemaóvissuhópeflispartýskrallið þurfa ekki að skrá sig í Zimsen, við gerum ráð fyrir ykkur þar líka.

Nýnemahópeflispartýskrall:

https://myschool.ru.is/myschool/?Page=Exe&ID=2.23&view=61&FagID=15354&Prog=3&sID=2&e=1175


Zimsen bjór:

https://myschool.ru.is/myschool/?Page=Exe&ID=2.23&view=61&FagID=15354&Prog=3&sID=2&e=1176

Mbk,

Víðir

Hádegisfyrirlestur Sandy Carter IBM Vice President í HR

Samfélagsmiðlar: Næsta langstökk – Skráning hafin

Ert þú að missa af upplýsingahraðlestinni?

Sandy Carter IBM Vice President, Social Business Sales and Evangelism, fjallar um hvers vegna samfélagsmiðlar eru mikilvægir til framtíðar, í HR þann 8. febrúar klukkan 12:10–13:00.

  • Af hverju er mikilvægt að beisla krafta samfélagsmiðla innan veggja fyrirtækja og stofnana?
  • Hvernig geta fyrirtæki nýtt sér samfélagsmiðla til þess að ná forskoti í samkeppni?
  • Hvers vegna eru samfélagsmiðlar næsta stökkið í þróun upplýsingatækni?

Sandy Carter frá IBM, metsöluhöfundur og frumkvöðull í samfélagsmiðlun, mun fjalla um hvernig fyrirtæki og stofnanir geta nýtt sér samfélagsmiðla og svara fyrirspurnum um efnið.

Nánar um Sandy Carter og fyrirlesturinn.

Skráðu þig hér. Ókeypis er á fyrirlesturinn.

The PhD Movie

The PhD Movie, based on the comic strip Piled Higher and Deeper, is coming in Iceland!

Watch the trailer here: http://www.phdcomics.com/movie/index.php

Event Information
Date/Time: Thursday, November 17, 8:00pm – 10:00pm
Location: Room M101, Reykjavik University
Length: 1h and 7min
Ticket Price: 750Kr
Tickets available at HR’s cafeteria EVERY DAY (starting Monday 24th Oct.) during lunch time from 12.00 to 13.15

Sign up to the Facebook Event here: http://tiny.cc/ku2y4

How does it work?
* PhDMovie is showing in campuses all over the world, but the screening rights have to be bought.
* The screening will only happen if enough tickets are sold to cover the screening fee. If not, the price of the tickets sold will be refunded.
* All extra money will be donated to charity.
* Tickets and refunds (if the latter becomes necessary) will be available at the cafeteria during lunch hours.
* Either (ticket/refund) can also be collected by directly contacting organizers (contact information below).
Tickets will be sold only until 30th of October.

Vísó/science trip to RS retail

SKRÁNING/REGISTRATION HÉR/HERE

Ein allra veglegasta vísindaferð ársins verður á föstudaginn kl 17:00. Við ætlum að skella okkur til öðlingana í LS retail. Þessi ferð vakti rosalega lukku í fyrra og var ein besta ferðin.
Eftir ferðina verður farið í bæinn þar sem menn klára kvöldið í góðum hóp. Í fyrra var svo mikið áfengi þarna að það komst bara enginn í bæinn og við gistum öll í LS retail. Þeir eru með góðar kojur og fínerí :D

Mynd sem var tekin í LS retail í fyrra.

Ekkert að reyna að vera leiðinlegur……en!

Það hefur því miður borið mikið á því að fólk er að afskrá sig eða boða forföll til okkar í stjórninni með e-mail rétt fyrir ferð. Sem gerir það að verkum að fólk sem er á biðlista er búið að gefa upp vonina að komast inn og mætir svo ekki þegar það er dottið inn. Þess konar e-mailum verður héðan í frá ekki svarað og fer fólk sem er skráð og mætir ekki á svartalistan.
Einnig hefur borið á því að fólk sem ekki er skráð í rútu er að taka rútu í bæinn. Héðan í frá verður listi við rútuna og fólk sem ekki er skráð í rútu fær ekki far með henni. Við verðum að hafa fjöldan á hreinu svo við getum pantað rétta stærð af rútu.

English
Science trip to LS retail on friday 17:00 registration HERE!

Smá lýsing á ensku:
LS Retail is the leading provider of end-to-end solutions for the Retail and Hospitality industry based on Microsoft Dynamics technology.

LS Retail is sold and supported by more than 120 certified partners in over 60 countries, which makes it possible to deploy LS Retail on a worldwide scale. This is probably the largest existing channel for a vertical Microsoft Dynamics add-on product. All our partners are certified and have undertaken advanced training on LS Retail NAV.

LS Retail has been installed by more than 1.500 companies with 27.000 stores operating over 55.000 POS terminals worldwide. Among many satisfied users of our solutions are: adidas, Kiddicare UK, Dobbies Garden Centres, Dreams, Rivoli Group, aswaaq, Popular Bookstores, Pizza Hut, IKEA, SPAR Belgium, HDS, ABRL Group, Disney Artist Shops, Uninor, Gallo Retail, Inc., Bodycare International, APC Japan, Baltika Group, Cili Pizza, Elie Saab, Wind Italy and many more.

Hlökkum til að sjá þig ;O)

Bíó kvöld Tvíundar

Miðvikudaginn 12 Október ætlar Tvíunda að halda fyrsta að vonandi mörgum videokvöldum vetrarins. Vegna fráfalls Steve Jobs verður myndin Pirates of Silicon Valley sýnd en þetta er mynd sem allir tölvunarfræðingar eiga að hafa séð. Boðið verður uppá léttar veitingar í hléi (pizzur).
Herlegaheitin byrja kl 20:00 á miðvikudagskvöldið.

Skráning á myschool

Hlökkum til að sjá ykkur

Wednesday, October 12 Tvíunda will hold the first of hopefully many video evenings. We are gonna wach Pirates of the Scilicon valley we will start at 20:00 on Wednesday. There will be pizzas :)

Looking forward to seeing you

HACKING KEPPNI!

Við hvetjum alla grúskara til að taka þátt í RU Hacking Contest þar sem keppt er um titilinn RU’S MOST LEET HACKER!
Takmarkið er að brjótast inn á tölvuna hacking.ru.is (port 1337) sem keyrir sérskrifaða þjónustu með fjölda öryggisgalla. Göllunum hefur verið skipt upp í fjögur stig eftir erfiðleika og takmarkið er að misnota þessa öryggisgalla til þess að komast að leyniorðum, eitt fyrir hvert stig keppninnar. Sá sem er fyrstur að komast á stig 3 eða 4 (og að því gefnu að einhver annar komist ekki lengra 2 vikum eftir þetta afrek) hlýtur titilinn ásamt verðlaunum sem verða tilkynnt síðar.

Allar nánari upplýsingar um keppnina og kóði fyrir þjónustuna má finna á http://www.ymsir.com/hacking/ (á ensku)
Einnig ættu allir að kíkja á Facebook grúppuna: http://www.facebook.com/groups/199666320104596/

KEPPNIN ER HAFIN! Allir að taka þátt

Víso í Maritech

SKRÁNING HEFST HÉR
SIGN UP HERE

[ENGLISH BELOW]

Næsta föstudaginn er okkur boðið í glæsilegt húsnæði Maritech í Borgartúni 26, innan sviga, svigi opnast “Wall street” Íslands, svigi lokast.

Það verður boðið upp á léttvín, bjór og allskyns veitingar ef við þekkjum félaga okkar í Borgartúninu rétt og ætti formaðurinn að geta vottað það því hann át svona ca. 6 snakkpoka og 200 snittur í fyrra .

Aðeins ein mynd náðist úr Maritech i fyrra:

Sæti eru fyrir 50 manns og hefst glaðningurinn stundvíslega kl 16:50 því hurðinni að byggingunni er lokað kl 17:00, muna því að koma tímalega!!

Staðsetning Maritech: http://ja.is/kort/#q=index_id%3A106269&x=358966&y=407997&z=9

Smá um Maritech:
“Maritech býður staðlaðar Microsoft Dynamics NAV lausnir auk fjölda sérlausna fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað.

——————-

Next Friday the software company Maritech is inviting us to visit them in a scientific format which means beer,wine and snacks which is an offer we can´t refuse.

The science trip begins at 16:50 so be there on time because the door closes at 17:00 :P

Here´s a little bit about Maritech:

“Maritech offers standard Microsoft Dynamics NAV solutions and also special solutions for the Icelandic and international market. More Details here

LOCATION: http://ja.is/kort/#q=index_id%3A106269&x=358966&y=407997&z=9

LION KING 3D!!!

Hakunamatata!

Vegna fjöld áskoranna höfum við ákveðið að fara í hópferð á LION KING 3D!!! á föstudaginn kl 18:00. Það er ekki gefins að fara í 3D bíó þessa dagana þannig að við ætlaum að borga á móti ykkur. En allir sem mæta eru beðnir um að koma með 500Kr með sér og láta Jönu hafa. Þetta er besti atburður sem Tvíund hefur og mun nokkrusinni halda, þannig að þú skalt ekki missa af þessu félagi! Þetta er eina ferðin þar sem þú getur óhrædd/ur grátið með öllum þínum vinum.

ATH þetta er aðeins fyrir meðlimi Tvíundar, þannig að ekki taka börn. Nema þú borgir fullt verð fyrir þau. Þá eru þau velkomin ;)

Eftir myndina förum við svo á Glaumbar eða Gaukinn og drekkum í okkur kjark eftir myndina.

English

We are going to see Lion King 3D on friday. It will cost you only 500 kr. After the best experiance of your life we will go to glaumbar and drink our selfs to the floor. Be there or be []

Skráning ———> HÉR <———–

Pizzahádegi


Fyrsta pizzahádegi vetrarins verður haldið undir stiganum í djúpinu kl 11:55

Endilega skráið ykkur hér

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 572 other followers